Bako Verslunartækni

Call Directions Website

Bako Verslunartækni Bako Verslunartækni - fagmenn og ástríðukokkar
Allt fyrir verslanir, vöruhús, stóreldhús, veitingastaði, bakstursiðnað, hótel & bari.

Við vinnum að hagkvæmum og árangursríkum lausnum með þér

BAKO VERSLUNARTÆKNI býður fjölbreyttar lausnir fyrir verslanir, vöruhús, hótel, veitingastaði, bari og bakstursiðnað. Við höfum áralanga reynslu og sérhæfum okkur í þjónustu og lausnum í verslanir og stórmarkaði, hvort heldur er kælikerfi, hillukerfi, öruggishlið eða annað sem þarf til að láta verslunarreksturinn virka sem best. Vöruhúsalausnir frá sterkbyggðum brettarekkum og í nettari og snyrtilegri hillukerfi. Í boði eru bæði sérhannaðar og sérsmíðaðar lausnir auk tilbúinna lausna frá okkar erlendu birgjum sem eru í sérflokki á lausnasviði. Opnunartími er frá kl. 08:00-17:00 (mán-fim) og 08:00-16:00 (fös) en utan þess tíma ef nauðsyn krefur er hægt að ná beint í starfsmann í gsm. Við teiknum grunnmyndir af verslunarplássum, eina sem þarf að gera er að senda okkur útlínuteikningu á viðurkenndu teikniforriti, gefa okkur eins góða lýsingu og hægt er af væntanlegri uppröðun og tækjanotkun. Við sendum síðan hugmyndir innan fárra daga. Við sjáum um eða útvegum iðnaðarmenn í uppsetningar á hillum og kælum sé þess óskað.

Öll varahluta og viðgerðarþjónusta er til staðar og leggjum við mikinn metnað í að leysa öll þau mál sem upp koma fljótt og örugglega. Hafðu samband í síma 5351300 eða með því að senda tölvupóst á [email protected]

Við bjóðum einnig uppá útkeyrslu á öllum okkar vörum á höfuðborgarsvæðinu, ásamt keyrslu á flutningsaðila fyrir landsbyggðina.

Nettó á Aðaltorgi hefur opnað! 💚Stórglæsileg, 1.500 fermetra verslun Nettó á Aðaltorgi opnaði í dag kl. 12.Hún er einsta...
07/11/2026

Nettó á Aðaltorgi hefur opnað! 💚
Stórglæsileg, 1.500 fermetra verslun Nettó á Aðaltorgi opnaði í dag kl. 12.

Hún er einstaklega rúmgóð, hlýleg og býður upp á mikið úrval af matvörum og sérvörum. Auk þess býður hún upp á stóra snyrtivörudeild með spennandi vörum.

Við erum stolt af frábæru samstarfi þar sem hillur, kælar, innréttingar, grænmetisstandar, körfur og margt fleira kemur frá okkur.

Margt var um manninn við opnun enda fjölmörg flott tilboð og margir spenntir að sjá þessa flottu verslun.

Innilega til hamingju, Nettó!

06/11/2026

Takk kærlega fyrir komuna á sýninguna Stóreldhúsið í Laugardalshöll!

Á sýningunni kynntum við hluta af okkar fjölbreytta vöruúrvali fyrir fageldhús, þar á meðal eldunartæki, kælibúnað, borðbúnað, eldhúsáhöld og ýmsar lausnir sem mæta þörfum fagfólks í veitinga- og matvælageiranum.

Við þökkum fyrir frábærar móttökur og ánægjulega daga á sýningunni!

Er Josper á matseðlinum? 🔥Josper-ofnar hafa skipað sér sess á virtum veitingahúsum víða um heim, þar á meðal hér á landi...
28/10/2026

Er Josper á matseðlinum? 🔥

Josper-ofnar hafa skipað sér sess á virtum veitingahúsum víða um heim, þar á meðal hér á landi. Á dögunum kynntu Sergio og Renzo fjölbreytta möguleika ofnsins fyrir nokkrum af okkar bestu matreiðslumönnum.

Hjá okkur finna fagfólk og ástríðukokkar allt sem þarf fyrir glæsilegt jólaborðhald. Við bjóðum mikið úrval af borðbúnað...
27/10/2026

Hjá okkur finna fagfólk og ástríðukokkar allt sem þarf fyrir glæsilegt jólaborðhald. Við bjóðum mikið úrval af borðbúnaði, glösum, eldhúsáhöldum og eldunarbúnaði í fagmannagæðum.

Við bjóðum einnig fjölbreyttar lausnir fyrir jólahlaðborðið sem sameina fallega framsetningu, góða nýtingu á plássi og þægilega framreiðslu.

Skoðaðu úrvalið hér: https://bvt.is/allt-fyrir-jolin

Við óskum Líflandi til hamingju með glæsilegt nýtt vöruhús á Korputorgi! ✨Þar er plássnýting í fyrirrúmi með BITO bretta...
23/10/2026

Við óskum Líflandi til hamingju með glæsilegt nýtt vöruhús á Korputorgi! ✨

Þar er plássnýting í fyrirrúmi með BITO brettarekkum, greinarekkum, millilofti og lagerhillum frá okkur. Þessar fjölbreyttu lausnir mæta ólíkum geymsluþörfum Líflands og skapa góða umgjörð um vöruflæði og dagleg störf.

BITO leggur áherslu á vandaðar og sveigjanlegar lagerlausnir sem nýta bæði gólfflöt og lofthæð. Brettarekkar og lagerhillur veita yfirsýn og greiðan aðgang að vörum, greinarekkar henta löngum og fyrirferðarmiklum vörum og milliloft bætir við verðmætu geymslu- og vinnurými. Einingauppbygging kerfanna gerir jafnframt kleift að aðlaga þau og stækka í takt við þróun starfseminnar.

Nýja vöruhúsið markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu Líflands á Korputorgi, þar sem öll starfsemi fyrirtækisins í Reykjavík verður sameinuð undir einu þaki.

Við þökkum fyrir traustið og virkilega ánægjulegt samstarf við þetta metnaðarfulla verkefni! 👏

Lífland

Í dag er alþjóðlegur dagur matreiðslumanna! 👨‍🍳👩‍🍳Kæru kokkar, takk fyrir dugnaðinn, ástríðuna og allar góðu stundirnar ...
20/10/2026

Í dag er alþjóðlegur dagur matreiðslumanna! 👨‍🍳👩‍🍳

Kæru kokkar, takk fyrir dugnaðinn, ástríðuna og allar góðu stundirnar sem þið skapið fyrir aðra í gegnum matinn. Þið eigið svo sannarlega hrós skilið fyrir að standa langar vaktir, þola hitann og láta hvert smáatriði skipta máli, jafnvel þegar álagið er mikið.

Til hamingju með daginn! 👏

16/10/2026

Flavour Blaster Pro 2 Kit er lent hjá okkur! 🫧🍸

Gerðu kokteilinn að einstakri upplifun með ilmandi loftbólum og tilkomumiklum gufuáhrifum. Flavour Blaster Pro 2 breytir ilmefnum í ilmandi gufu sem setur skemmtilegan svip á kokteila, eftirrétti og aðra rétti.

Einfalt í notkun og tilbúið á örskotsstundu. Tilvalið fyrir bari, veitingastaði og viðburði.

Úrval ilmefna fæst sér, svo auðvelt er að sníða upplifunina að hverjum drykk eða rétti. ✨

Komdu góðu skipulagi á dekkin með BITO dekkjarekkum. Rekkarnir fást í mismunandi stærðum og hægt er að stækka kerfið eft...
15/10/2026

Komdu góðu skipulagi á dekkin með BITO dekkjarekkum. Rekkarnir fást í mismunandi stærðum og hægt er að stækka kerfið eftir því sem geymsluþörfin eykst. Þeir henta jafnt í bílskúrinn heima og hjá fagaðilum sem þurfa að geyma mikið magn af dekkjum í ólíkum stærðum.

Með dekkjarekkum nýtirðu geymslurýmið betur, losar um gólfpláss og færð betri yfirsýn yfir dekkin. Gott aðgengi auðveldar umgengni og gerir skipti milli sumar- og vetrardekkja þægilegri.

BITO eru boltalausar hillur og bæði einfaldar og fljótlegar í samsetningu. Hafðu samband við [email protected], kíktu til okkar á Dragháls 22 eða hringdu í síma 595-6200 fyrir frekari upplýsingar. Einnig eru hillueiningarnar í vefverslun hér: https://bvt.is/brand/bito/

Japönsk hnífagerð á sér langa sögu. Í borginni Seki smíðuðu sverðsmiðir vopn samúræjanna og þróuðu þekkingu á stáli, her...
12/10/2026

Japönsk hnífagerð á sér langa sögu. Í borginni Seki smíðuðu sverðsmiðir vopn samúræjanna og þróuðu þekkingu á stáli, herslu og slípun sem hefur gengið milli kynslóða í um 800 ár. 🍣

Í Sakai voru það hins vegar tóbakslauf sem ýttu undir þróunina á 16. öld. Laufin þurfti að skera einstaklega fínt og hnífarnir urðu svo rómaðir fyrir skerpu að yfirvöld veittu þeim sérstakan gæðastimpil. 🏅

Við bjóðum úrval af japönskum hnífum frá Japanese Knife Company. Í úrvalinu eru handsmíðaðir hnífar með allt að 99 stállögum og Damascus-mynstri sem verður til úr lögunum sjálfum. Harður stálkjarni myndar fína skurðegg, umlukinn verndandi stállögum. Þunn blöðin auðvelda nákvæma skurði með lítilli fyrirhöfn, frá örþunnum fiskisneiðum til fínt skorins grænmetis. 🥕

Skoðaðu úrvalið hér: https://bvt.is/fagfolk/storeldhus-og-veitingastadir/eldhusahold-og-gastro/hnifar-og-fylgihlutir/japanskir-hnifar.html/

Address

Draghálsi 22
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545351300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bako Verslunartækni posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Nearby bars and pubs