Heimili og skóli - Landssamtök foreldra

Heimili og skóli - Landssamtök foreldra Heimili og skóli veita ráðgjöf og stuðning til foreldra og foreldrasamtaka um allt land.

Kristín Ólöf Grétarsdóttir, stjórnarkona hjá Heimili og skóla, mætti í útvarpið á Rás 2 til að ræða símafrið (símabann) ...
15/07/2026

Kristín Ólöf Grétarsdóttir, stjórnarkona hjá Heimili og skóla, mætti í útvarpið á Rás 2 til að ræða símafrið (símabann) sem er boðað í grunnskólum landsins. Heimili og skóli, landssamtök foreldra fagna reglugerðinni og hrósa Ingu Sæland barna- og menntamálaráðherra fyrir að stíga þetta skref af festu.

Hæg er að hlusta á spjallið hér fyrir neðan.

Um síðustu mánaðamót voru hátt í tólf hundruð atvinnulausir í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Þetta er sú atvinnugrein þar sem atvinnuleysi mælist þriðja mest. Atvinnustig í greininni hefur verið hátt undanfarin ár en nú eru blikur á ...

Heimili og skóli skrifaði undir samning á dögunum við Samtök sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu um þróun á foreldraleiðar...
10/07/2026

Heimili og skóli skrifaði undir samning á dögunum við Samtök sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu um þróun á foreldraleiðarvísi. Við þökkum kærlega fyrir traustið sem samtökunum er sýnt og hlökkum til að sýna afrakstur vinnunnar.

Markmið verkefnisins er að efla stuðning við foreldra í ábyrgðarhlutverki sínu með sérstökum leiðarvísi um æskilega foreldrafræðslu sem skipt er upp eftir aldri barna.

SSH og Heimili og skóli - Landssamtök foreldra skrifuðu undir samning á dögunum sem markar upphaf vinnu á þróun foreldrafræðslu. Markmið verkefnisins er að efla stuðning við foreldra í ábyrgðarhlutverki sínu.

🔗 Tengill í athugasemdum

Ný reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum markar tímamót fyrir börnin okkar, meiri námsfriður, betri líða...
08/07/2026

Ný reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum markar tímamót fyrir börnin okkar, meiri námsfriður, betri líðan, öruggara umhverfi og fleiri raunveruleg samskipti í frímínútum.

Við hjá Heimili og skóla viljum hrósa Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra fyrir að stíga þetta mikilvæga skref, og Reykjavíkurborg fyrir að ganga strax í málið og koma á símafriði í skólum borgarinnar frá og með næsta hausti.

Vel gert! 👏

Inga Sæland Mennta- og barnamálaráðuneytið

Hildur Björnsóttir Hildur Björnsdóttir / Borgarfulltrúi

Bjarni Fritzson Bjarni Fritz

Í grunnskólum landsins eru að verða kaflaskil. Ný reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum markar tímamót í því hvernig við búum börnunum okkar heilbrigt og öruggt umhverfi á skólatíma.

Félagsgjöld:Í dag, 7. júlí, voru félagsgjöld ársins send út á skráða félaga.Eins og áður hefur komið fram á þessari síðu...
07/07/2026

Félagsgjöld:

Í dag, 7. júlí, voru félagsgjöld ársins send út á skráða félaga.

Eins og áður hefur komið fram á þessari síður þá er skrifstofa samtakana lokuð í þessum mánuði en ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband í gegn um tölvupóstfangið [email protected] sem er skoðaður reglulega.

Þjónustumiðstöð Heimilis og skóla lokar vegna sumarleyfa í júlí. Það verður þó alltaf hægt að senda tölvupóst á heimilio...
29/06/2026

Þjónustumiðstöð Heimilis og skóla lokar vegna sumarleyfa í júlí.
Það verður þó alltaf hægt að senda tölvupóst á [email protected]

Við komum hress og kát til baka eftir verslunarmannahelgina, tilbúin að takast á við nýjar og spennandi áskoranir!

Vonandi njótið þið öll sumarsins ☀️

SUMARSÁTTMÁLISumarið er tími breytinga. Börnin eru lengur úti, dagleg rútína breytist og fjölskyldur verja meiri tíma sa...
25/06/2026

SUMARSÁTTMÁLI

Sumarið er tími breytinga. Börnin eru lengur úti, dagleg rútína breytist og fjölskyldur verja meiri tíma saman. Þótt skólinn fari í frí heldur uppeldi og stuðningur við börnin áfram.

Sumarsáttmálinn byggir á sömu hugmyndafræði og Farsældarsáttmálinn: að foreldrar og fjölskyldur sameinist um einföld, sameiginleg gildi sem styðja við öryggi, vellíðan og farsæld allra barna.

Sniðugt er fyrir foreldrahópa eða fjölskyldur að setjast niður og gera Sumarsáttmálann saman.

Hægt er að sammælast um ýmis atriði eins og til dæmis:
🌞 að eiga góða samveru á hverjum degi
🚲 að hvetja til útiveru og hreyfingar
🕘 að hafa skýr viðmið um útivist og skjátíma
🤝 að fylgjast með hvort öll börn hafi einhvern til að leika við
❤️ að sýna umhyggju, virðingu og vera til staðar hvert fyrir annað

💚 Sumarsáttmálinn er einföld leið til að minna okkur á að litlar, sameiginlegar ákvarðanir geta haft stór áhrif á öryggi, tengsl og gleði barna allt sumarið.

Leikvellir Íslands á einum staðVið viljum vekja athygli á skemmtilegri og nytsamlegri síðu Leikvellir Íslands.  Á síðunn...
19/06/2026

Leikvellir Íslands á einum stað

Við viljum vekja athygli á skemmtilegri og nytsamlegri síðu Leikvellir Íslands. Á síðunni er hægt að skoða leikvelli á korti, leita eftir landshlutum og tegundum leiksvæða, t.d rennibrautum, klifurgrindum, sandkössum, ærslabelgjum og ungbarnarólum.
Einnig er hægt að bæta við leikvöllum.
Síðuna gerði Ágúst Arnar Þráinsson og á hann hrós skilið fyrir þetta flotta framtak sem getur nýst fjölskyldum, börnum, skólum og öllum sem vilja finna góð leiksvæði víða um land. 👉 Kíkið endilega á síðuna, leikvellir.is

Við hjá Heimili og skóla erum í Hörpunni í dag til klukkan 14 á Heimstónlistarhátíð fjölskyldunnar.
13/06/2026

Við hjá Heimili og skóla erum í Hörpunni í dag til klukkan 14 á Heimstónlistarhátíð fjölskyldunnar.

08/06/2026

Þegar sumarið gengur í garð breytast daglegar venjur margra fjölskyldna. Skólum lýkur, skipulagið verður frjálslegra og börn og ungmenni verja meiri tíma með vinum sínum og utan hefðbundins ramma skóla og tómstunda.

Ný stjórn Heimilis og skóla: foreldrar fái sterkari rödd í samfélagsumræðunniSigvaldi Egill Lárusson hefur tekið við sem...
01/06/2026

Ný stjórn Heimilis og skóla: foreldrar fái sterkari rödd í samfélagsumræðunni

Sigvaldi Egill Lárusson hefur tekið við sem formaður Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, ásamt nýrri stjórn. Nýja stjórnin boðar breyttar áherslur þar sem samtökin verða öflugri talsmaður foreldra í opinberri umræðu um menntun og velferð barna.

Á aðalfundi Heimilis og skóla, sem haldinn var laugardaginn, 30. Mai 2026, var Sigvaldi Egill Lárusson kjörinn formaður samtakanna. Með honum tekur sæti ný stjórn sem hyggst efla rödd foreldra á sviði menntamála og barnamála í íslensku samfélagi.

„Foreldrar eru stærsti einstaki hagsmunahópurinn í menntakerfinu, en rödd þeirra hefur ekki alltaf heyrst nógu skýrt í samfélagsumræðunni," segir Sigvaldi. „Við viljum breyta því. Heimili og skóli á að vera öflugur og sýnilegur talsmaður foreldra þegar teknar eru ákvarðanir sem snerta börnin þeirra, hvort sem það varðar námsmat, líðan í skóla, stafrænt umhverfi eða önnur stór mál."

Umræðan um menntamál hefur verið afar fyrirferðarmikil síðustu árin allt frá samræmdu námsmati til líðan barna og stafræns umhverfis. Í þeirri umræðu hefur hins vegar oft vantað sjónarhorn foreldra. Nýja stjórnin hyggst breyta því og tryggja að rödd foreldra heyrist skýrt þegar fjallað er um mál sem snerta börnin þeirra.
Sigvaldi Egill tekur við keflinu af Jóhanni Gunnarssyni og hlakkar til að vinna með nýrri stjórn að þessum áherslum á komandi starfsári.
________________________________________
Ný stjórn Heimilis og skóla
Á aðalfundinum voru eftirtalin kjörin í stjórn samtakanna ásamt Sigvaldi Agli Lárussyni, formanni:
• Hermann Arnar Austmar
• Karen Kristine Pye
• Stefán Karl Snorrason

Fyrir í stjórn sitja áfram:
• Héðinn Svarfdal Björnsson
• Kristín Ólöf Grétarsdóttir
• Salka Hauksdóttir

Varamenn:
• Atli Þór Jóhannsson
• Dagný Hróbjartsdóttir
• Kristófer Nökkvi Sigurðsson
• Stefán Þór Helgason

Address

Bæjarlind 2, 2. Hæð
Reykjavík
201

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3545160100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heimili og skóli - Landssamtök foreldra posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Heimili og skóli - Landssamtök foreldra:

Shortcuts

Share