Hannesarholt

Call Directions Website

Hannesarholt Cuisine and culture in a beautiful historic building in the centre of Reykjavík. Matur, menning, fundir og ráðstefnur í sögufrægu húsi. Built in 1915.

Culture, art, food and history in a beautiful historic home of Iceland's First Minister of State, Hannes Hafstein, in the centre of Reykjavík. Hljóðberg, music-and conference hall recently built adjacent to the house. Matur, menning, listir, saga, fundir og ráðstefnur í sögufrægu húsi, síðasta heimili Hannesar Hafstein, fyrsta Íslandsráðhennans. Byggt 1915. Í nýlegri viðbyggingu við húsið er Hljóðberg, tónlistar-og ráðstefnusalur.

Fjölbreytt dagskrá í Hannesarholti þessa vikuna: Steinunn Þorvaldsdóttir og Anna Þórhildur Gunnarsdóttir flytja lög og a...
03/11/2026

Fjölbreytt dagskrá í Hannesarholti þessa vikuna:
Steinunn Þorvaldsdóttir og Anna Þórhildur Gunnarsdóttir flytja lög og aríur eftir Wagner, Sibelius og Strauss á morgun, miðvikudaginn 4. nóvember kl. 20. Miðasala á tix.is.

Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv flytja lög af nýútkominni plötu sinni, Layers, á laugardaginn kl. 20. Miðasala á tix.is.

Uppselt er á tónleika Les Métèques á föstudaginn og á Vísur Svantes á laugardaginn, en það eru 5 miðar eftir á aukatónleika Vísur Svantes þann 3. desember.

Síðasta tækifæri til að sjá sýninguna Hvalalíf er á morgun, miðvikudaginn 4. nóvember, kl. 11:30-14:00. Ljósmyndasýning Guðrúnar Önnu Matthíasdóttur verður opnuð á laugardaginn, 7. nóvember, kl. 14 og stendur til 25. nóvember. Við minnum á að hægt er að sækja um að halda myndlistarsýningu í Hannesarholti hér: https://forms.gle/zGeo6Atds4VbrZio7

Fiskur dagsins er á sínum stað í hádeginu, auk nýjungarinnar Tarte Flambée, sem er þunn og stökk flatbaka að hætti Alsace-búa.

29/10/2026

Opnunarhátíð, fimmtudaginn 29.október

Landvernd, Saman gegn sóun og Sorpa bjóða ykkur hjartanlega velkomin á opnunarviðburð Nægjusams nóvember, sem haldinn er í samstarfi við Heimili heimsmarkmiðanna í Hannesarholti.

Nóvember er einn neysluríkasti mánuður ársins með sínum svarta föstudegi, netmánudegi og degi einhleypra.

Nægjusamur nóvember er hvatningarátak sem snýst um að finna verðmæti í því sem við eigum nú þegar, hægja á neysluhraðanum og leita leiða til að lifa í meiri sátt við náttúruna og nærumhverfi okkar. Þetta er andsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um að okkur vanti stöðugt eitthvað.

Á þessum opnunarviðburði ætlum við að kafa dýpra í kjarna átaksins og skoða hvernig við getum fundið valdeflinguna, jákvæðnina og gæðin í nægjusemi.

Vikan í Hannesarholti: HÁDEGISMATUR miðvikudag - laugardags, afbragð. MAÐUR ER MANNS GAMAN miðvikudag 21.október kl.14 m...
20/10/2026

Vikan í Hannesarholti: HÁDEGISMATUR miðvikudag - laugardags, afbragð. MAÐUR ER MANNS GAMAN miðvikudag 21.október kl.14 með Beggó gjörnýtingarsinna, öll velkomin frítt inn, TÓNLEIKAR miðvikudag kl.20, Julius Windisch og Freysteinn Gíslason, miðasala á tix.is, TÓNLEIKAR fimmtudag kl.20, Dúó Sandur, Einar Bjartur Egilsson og Gerður Bolladóttir, miðasala á tix.is, BÓKVIT laugardag 24.október kl.11.30, Benedikt Bókaútgáfa, HVALALÍF, málverkasýning Sóleyjar Drafnar Davíðsdóttur, leiðsögn laugardaginn 24.október kl.14-16. TÓNLEIKAR Vísur Svantes, laugardag 24.okt kl.16, miðasala á tix.is

30/04/2026

Address

Grundarstígur 10
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hannesarholt posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Nearby bars and pubs