24/05/2026
Hvetjum skólafólkið til að taka þátt í þessu skemmtilega móti ⛳️
Golfsaga - GÚ
FÖSTUDAGINN 19.JÚNÍ
Lokað mót nemenda í golfskóla Golfsögu á Costa Ballena.
Keppnisrétt hafa allir nemendur golfskólans, fyrr og síðar.
Leiknar eru 9 holur, ræst frá 9:30 til 16:54 (12 mín á milli ráshópa).
Punktakepppni, karlar leika af gulum teigum, konur af rauðum teigum.
Full leikforgjöf gildir.
Staðarreglur Úthlíðarvallar gilda.
Leikmenn með golfboxnúmer skrá skrá sig sjálfir í Golfbox og velja rástíma um leið. Hægt að skrá sjálfan sig og meðspilara.
Mótsgjald kr. 5.000 greiðist í skála fyrir leik
Leikmenn utan GSÍ hafi samband við mótanefnd vegna aðstoðar við skráningu, [email protected]
Golfboxnúmer og forgjöf þarf til að leika til verðlauna.
Verðlaunaafhending í golfskála eftir mót um kl. 19:30.
Verðlaun fyrir þrjú efstu sæti karla og kvenna eru inneign upp í golfferð hjá Golfsaga:
1. sæti, gjafabréf kr. 45.000
2. sæti, gjafabréf kr. 35.000
3. sæti, gjafabréf kr. 25.000
Nándarverðlaun verða veitt fyrir högg næst holu á par 3 brautunum hjá konum og körlum (þarf ekki að vera á flöt)