Landmótun

Landmótun Landmótun er teiknistofa landslagsarkitekta sem veitir alhliða ráðgjöf við skipulag, hönnun, mat á umhverfisáhrifum og ýmiss konar kortagerð.

Stofan leggur áherslu á fagleg vinnubrögð og umhverfisstefnu í anda sjálfbærrar þróunar. Landmótun er framsækin teiknistofa landslagsarkitekta og skipulagsfræðinga. Stofan hefur verið mjög öflug á sviði hönnunar og skipulags, aðallega á aðalskipulagssviði en hefur á undaförnum árum haslað sér sífellt sterkari völl á deiliskipulagssviði. Við teljum að stofa eins og okkar sé mjög áhugaverður valkostur hvað varðar skipulag þar sem nálgun okkar starfstéttar getur verið nokkuð önnur en margra annarra. Landmótun hefur lagt áherslu á sjálfbæra þróun og nálgun sem gengur út á að nýta sem allra best það sem fyrir er, ásamt því að telja sjálfsagt að vinna í sátt við íbúa og hagsmunaaðila. Landmótun er öflug hönnunarstofa á sviði landslagsarkitektúrs og hefur lagt metnað í að ráða unga framsækna hönnuði. Univesal design eða það að ávalt eigi að taka mið af öllum notendahópum, bæði hvað verðar aldur og hæfni, er nokkuð sem við teljum mikilvægt ásamt hagkvæmni og sjálfbærni.

Við á Landmótun erum farin í sumarfrí og verður stofan lokuð frá 20. júlí til og með 3. ágúst 2026. Minnum á heimasíðuna...
20/07/2026

Við á Landmótun erum farin í sumarfrí og verður stofan lokuð frá 20. júlí til og með 3. ágúst 2026.
Minnum á heimasíðuna okkar www.landmotun.is
Gleðilegt sumar ☀️

09/06/2026

Snorrabraut 54 – Þar sem saga og nútíma landslagshönnun mætast
Við Snorrabraut 54 hefur risið nýtt og glæsilegt 2-3 hæða fjölbýlishús með 39 vönduðum 2-5 herbergja íbúðum, staðsett vestan við hina sögufrægu Mjólkurstöð. Verkefnið fagnar fortíðinni þar sem gamla Mjólkurstöðin hefur fengið nýtt líf sem stílhreint hostel, og rík áhersla er lögð á að upprunaleg ásýnd hennar fái að njóta sín til fulls.
Hjarta svæðisins er lifandi og skjólgott inntorg á milli bygginganna, sem jafnframt hýsir aðalinganga íbúðanna. Landslagshönnunin spilar lykilhlutverk í að skapa jafnvægi á milli næðis og mannlífs; gróðursæl og snyrtileg gróðurker mynda mjúk en skýr skil á milli almenna rýmisins og séreigna. Á jarðhæð nýbyggingarinnar fléttast lífleg þjónusturými við Snorrabrautina, á meðan dags dagleg þægindi eru tryggð með rúmgóðum bílakjallara undir húsinu og inngarðinum.

Verkflokkur: Nýbygging
Staðsetning: Snorrabraut 54
Stærð:2876m2
Ártal:2025
Samstarfsaðillar ef við á: Arkþing/Nordic og Teikna
Verkkaupi:Flotgólf ehf.

Við erum virkilega glöð að segja frá því að í dag tókum við á móti verðlaunum fyrir 3. sæti í “Hjólað í vinnuna”! 🥉🚴🏼‍♀️...
03/06/2026

Við erum virkilega glöð að segja frá því að í dag tókum við á móti verðlaunum fyrir 3. sæti í “Hjólað í vinnuna”! 🥉🚴🏼‍♀️
Verkefni á borð við „Hjólað í vinnuna“ snúast um svo miklu meira en bara spandex og svita. Þegar við ferðumst um borgina á virkum ferðamáta finnum við á eigin skinni hvað skipulags- og hönnunarmál eru í raun mikið lýðheilsumál. Þegar fleiri hjóla minnkar umferð og mengun og minna álag á innviðum borga og bæja. Mikilvægt er að tengja byggð þannig að hjólreiðar séu rökréttur kostur og skapa örugga, græna og skjólgóða stíga. Þegar þessir hlutir fléttast saman sköpum við umhverfi sem hvetur til hreyfingar og bætir vellíðan.
Fyrir okkur er þetta hjartans mál. ❤️
Takk fyrir peppið ÍSÍ! 📣

20/05/2026

Sumarið er komið í Hamraborgina! 🌼
Megi þeir verða sem flestir, hádegisverðirnir hérna úti ☀️

15/05/2026

Við fögnum umræðunni sem hefur átt sér stað í liðinni viku um leiksvæði barna!
Hluti af starfi landslagsarkitekta er að hanna leiksvæði fyrir börn sem eru skemmtileg og áhugaverð en á sama tíma örugg og krefjandi. Þegar öllum þessum þáttum er náð, og við náum að tengja við ímyndunarafl barna, þá er gaman ✨

Æskuslóðir hlaut 2. sæti í hugmyndaleit fyrir nýtt íbúðarhverfi - Hallar í Úlfarsárdal Hugmyndaleitin fól í sér mótun á ...
20/03/2026

Æskuslóðir hlaut 2. sæti í hugmyndaleit fyrir nýtt íbúðarhverfi - Hallar í Úlfarsárdal

Hugmyndaleitin fól í sér mótun á rammaskipulagi þar sem kallað var eftir skýrri meginhugmynd svæðisins.

Leitað var til arkitektastofa sem hafa sýnt framsýni og næmni í verkefnum sínum og hafa reynslu í þróun rammaskipulags og skipulagningu nýrra hverfa í Reykjavík.

Erum við að leita að þér? 👀🔎
16/03/2026

Erum við að leita að þér? 👀🔎

Einu sinni vorum við öll ung! 👶🏼Svæpið til að sjá hverjir eru á bakvið hin ýmsu verkefni Landmótunar, þó þetta sé nú ald...
13/03/2026

Einu sinni vorum við öll ung! 👶🏼
Svæpið til að sjá hverjir eru á bakvið hin ýmsu verkefni Landmótunar, þó þetta sé nú aldeilis ekki tæmandi listi og allir beri marga og fjölbreytta hatta! 🎩

Einu sinni vorum við öll ung! 👶🏼Svæpið til að sjá hverjir eru á bakvið hin ýmsu verkefni Landmótunar, þó þetta sé nú ald...
13/03/2026

Einu sinni vorum við öll ung! 👶🏼
Svæpið til að sjá hverjir eru á bakvið hin ýmsu verkefni Landmótunar, þó þetta sé nú aldeilis ekki tæmandi listi og allir beri marga og fjölbreytta hatta 🎩

Okkur barst listi frá hressum leikskólakrökkum sem höfðu miklar skoðanir á hvernig útisvæðið þeirra ætti að líta út og h...
27/02/2026

Okkur barst listi frá hressum leikskólakrökkum sem höfðu miklar skoðanir á hvernig útisvæðið þeirra ætti að líta út og hvað þau vildu fá á sína lóð. Listinn er of góður til að deila honum ekki áfram en þetta er líklega frumlegasti markhópurinn sem við hönnum fyrir!
Ef einhver veit hvar við fáum skóflu sem labbar þá endilega látið okkur vita! 🤝🏼

Address

Hamraborg 12
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+354-575 5300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landmótun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Landmótun:

Shortcuts

Share