25/09/2026
Við erum virkilega stolt af því að hafa verið valin í hópi framúrskarandi fyrirtækja hjá Creditinfo núna fjórða árið í röð en Saltverk er þar í hópi 2% íslenskra fyrirtækja.
Viðurkenningin er ein önnur staðfesting á því að þrotlaus vinna og stefnufesta skipta máli. Þetta ár markar einmitt 15 ár síðan Saltverk hóf starfsemi sína og á þessu afmælisári er gott að líta yfir farinn veg.
Að framleiða salt á Reykjanesinu með einungis náttúrulegum orkugjafa, jarðhitanum á svæðinu, hefur oft reynst áskorun. En áskorunin hefur þó verið gríðarlega skemmtileg og með traustu og tryggu teymi, sem margir hverjir hafa verið með okkur meginpart starfseminnar, hefur fyrirtækið staðið keikt.
Árangur Saltverk hefur komið í skrefum, jafnt og þétt. Hugmyndafræðin alltaf sú sama en sú hugmyndafræði, ásamt vinnu sem einkennist af þolinmæði, hefur borið saltið okkar yfir hafið og í hillur stórverslana í Bandaríkjunum og í Danmörku, auk þess sem að Saltverk er nú fáanlegt á bæði Amazon og iHerb. Smám saman, og án þess að flýta sér um of, hefur Saltverk stækkað og stendur nú í hillum og í eldhúsum út um allan heim.