Café Eldstöðin

Café Eldstöðin Kraumandi og eldvirkt kaffihús við Tryggvagötu. Opið 08-24. Kraumandi kaffihús í Tryggvagötu. Eldvirkur matseðill og funheitar hamingjustundir.

Eldstöðin býður upp á og hollan matseðil, rífandi gott kaffi, magnaðan morgunmat og "happy hour" alla daga milli kl. 17.00 - 19.00. Eldvirkni, eldfjöll, jarðskjálftar og jarðfræði almennt er i sérstöku uppáhaldi hjá okkur. Kíktu á okkur, við tökum vel á móti þér!

Eldstöðin opnar laugardaginn 19. apríl (fyrir páskadag) eftir breytingar. Kaffihúsi Eldstöðvarinnar hefur verið lokað tí...
17/04/2014

Eldstöðin opnar laugardaginn 19. apríl (fyrir páskadag) eftir breytingar. Kaffihúsi Eldstöðvarinnar hefur verið lokað tímabundið en starfsemi bíóhússins, jarðfræðisýningar og verslunar verður óbreytt. Bíósýningar á ensku á heila tímanum frá 9-22.

Vefmyndavél hefur verið sett upp á Grímsfjalli með útsýni í vestur, yfir Grímsvötn, eina virkustu eldstöð landsins. Véli...
13/04/2014

Vefmyndavél hefur verið sett upp á Grímsfjalli með útsýni í vestur, yfir Grímsvötn, eina virkustu eldstöð landsins. Vélin sendir ljósmyndir á tíu mínútna fresti, en jarðeðlisfræðingar geta einnig fengið beina útsendingu þaðan, þegar vísbendingar eru um eldsumbrot eða hlaup. Hér má sjá tengil á vefmyndavélina:
http://vedur2.mogt.is/grimsfjall/webcam/

Myndavélin var sett upp nýlega, og fyrstu myndirnar birtust á mánudaginn, segir Björn Oddsson, verkefnisstjóri hjá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, sem stóð fyrir uppsetningu vélarinnar ásamt Neyðarlínunni og Jöklarannsóknarfélaginu. Myndirnar koma í gegnum fjarskiptabúnað Neyðarlínunnar frá Grímsfjalli, þaðan sem gögn koma einnig frá jarðskjálftamælum og veðurathugunarstöð Veðurstofunnar. „Vefmyndavélin og ljósmyndir úr henni eru öllum aðgengilegar, en þegar eitthvað gerist í Grímsvötnum, þá getum við einnig stillt vélina þannig að jarðeðlisfræðingar og aðrir geti fylgst með þróun mála í beinni útsendingu,“ segir Björn.

Náttúra Íslands er síbreytileg og mikil umskipti verða oft á skömmum tíma þegar vindar, regn og veðurbreytingar herja á ...
26/01/2014

Náttúra Íslands er síbreytileg og mikil umskipti verða oft á skömmum tíma þegar vindar, regn og veðurbreytingar herja á landið. Það á meðal annars við um færslu jökla, myndun lóna, uppgræðslu eða landbrot. Fyrirtækið Loftmyndir hefur síðustu ár tekið myndir úr lofti af öllu landinu og uppfærir þær á eins til átta ára fresti að meðaltali. Þegar myndir af sama stað eru bornar saman má sjá hversu miklar breytingar hafa orðið á ekki lengri tíma en einum áratug.
Sjá meira á vef mbl.is
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/01/26/miklar_landslagsbreytingar/

"Í seinustu viku mældust 280 jarðskjálftar á landinu. Engar stærri hrinur urðu en virkasta svæðið var við Herðubreið og ...
23/01/2014

"Í seinustu viku mældust 280 jarðskjálftar á landinu. Engar stærri hrinur urðu en virkasta svæðið var við Herðubreið og Herðubreiðartögl. Stærsti skjálftinn var 2,5 og var hann við austari Skaftárketilinn. Lýst var yfir hlaupi úr vestari Skaftárkatli síðdegis á sunnudeginum."
http://www.vedur.is/ =skjalftar

Það er kalt á landinu okkar góða og hafísin ekki langt undan. Hinsvegar funheitt í Eldstöðinni alla daga og opið frá 9.0...
13/01/2014

Það er kalt á landinu okkar góða og hafísin ekki langt undan. Hinsvegar funheitt í Eldstöðinni alla daga og opið frá 9.00 á morgnanna til 22.00 á kvöldin.

Eldstöðin óskar öllum vinum sem og landsmönnum nær og fjær gleðilegs árs. Við fögnum nýju ári með nýjum matseðli og bjóð...
03/01/2014

Eldstöðin óskar öllum vinum sem og landsmönnum nær og fjær gleðilegs árs. Við fögnum nýju ári með nýjum matseðli og bjóðum ykkur velkomin inn úr kuldanum inn í funheita Eldstöðina.
Birti hér fallega mynda af gosi í Etnu á Sikiley sem gaus sl. október en sem betur fer varð ekkert gos á landinu á liðnu ári en hver veit hvað nýtt ár hefur í för með sér?

Eldstöðin er komin í jólaskap, vel skreytt og glitrandi. Við verðum með opið alla dagana yfir hátíðirnar, mismikið þó ei...
13/12/2013

Eldstöðin er komin í jólaskap, vel skreytt og glitrandi. Við verðum með opið alla dagana yfir hátíðirnar, mismikið þó eins og gefur að skilja. Afgreiðslutímar Eldstöðvarinnar yfir hátíðirnar eru sem hér segir:

23.desember 9-22
24.desember 9 – 16
25.desember 12 - 18
26.desember 9 - 22
31.desember 9 - 16
1.janúar 12 - 18
2.janúar 9 - 22

Frábært kaffi og Hraun með, jólabjór og léttir réttir á fáránlega fínu verði. Akkúrat málið á aðventunni.
Sjáumst funheitri Eldstöðinni!

Fyrirlestur verður haldinn um eldstöðvakerfi Krísuvíkur og áhrif þess á höfuðborgarsvæðið í Eldstöðinni miðvikudaginn 4....
03/12/2013

Fyrirlestur verður haldinn um eldstöðvakerfi Krísuvíkur og áhrif þess á höfuðborgarsvæðið í Eldstöðinni miðvikudaginn 4. desember 2013 kl. 20.00.
Sigmundur Einarsson jarðfræðingur á Náttúrufræðistofnun fjallar um hugsanleg áhrif Krísuvíkureldstöðvakerfisins á vatnsból höfuðborgarsvæðisins og jarðhitasvæðin í Mosfellsdal. Einnig verður fjallað um gossögu síðustu árþúsunda og líkur á eldgosi og áhrif þess á íbúðabyggð og önnur mannvirki.
Á eftir erindi Sigmundar mun Ellert Grétarsson náttúruljósmyndari sýna ljósmyndir af svæðinu, ásamt nýjum myndum sem hann tók í sumar af hraunhellum á Reykjanesskaga.
Aðgangseyrir félaga í Hamrinum er 500 krónur aðrir 700 kr.

19/11/2013

RÉTTUR DAGSINS
Þorskrúlla með sólþurrkuðum tómötum og humarsósu.
Súpa dagsins, ferskt brauði, smjör og kaffi innifalið.1690 kr.
Velkomin í ljúffengan hádegisverð í Eldstöðinni, Tryggvagötu.

Réttur dagsins er ljúffengur marineraður kjúklingur með grænmeti og hrísgrjónum. Aðeins kr. 1690, súpa, nýtt brauð og sm...
15/11/2013

Réttur dagsins er ljúffengur marineraður kjúklingur með grænmeti og hrísgrjónum. Aðeins kr. 1690, súpa, nýtt brauð og smjör og kaffi innifalið.

Hamarinn, félag áhugafólks um jarðfræði, í samstarfi við Eldstöðina stendur fyrir dagskrá um Surtsey í tilefni af fimmtu...
12/11/2013

Hamarinn, félag áhugafólks um jarðfræði, í samstarfi við Eldstöðina stendur fyrir dagskrá um Surtsey í tilefni af fimmtugsafmæli eyjarinnar Hamarinn, félag áhugafólks um jarðfræði, í samstarfi við Eldstöðina stendur fyrir dagskrá um Surtsey í tilefni af fimmtugsafmæli eyjarinnar nk. fimmtudag. kl. 20.00.
Þann 14. nóvember nk. verða 50 ár liðin frá upphafi eldsumbrotanna í Surtsey. Það var að morgni þessa dags fyrir hálfri öld að skipverjar á fiskibátnum Ísleifi II. frá Vestmannaeyjum sáu að eldgos var hafið á um 130 m sjávardýpi, skammt suðvestan við Geirfuglasker. Þessi eldsumbrot stóðu yfir með hléum þar til í júní 1967 eða í tæp fjögur ár, og eru því meðal þeirra lengstu sem kunn eru á sögulegum tíma á Íslandi.
Á Surtseyjarkvöldinu mun Sveinn P. Jakobsson jarðfræðingur flytja erindi um sögu Surtseyjar og rannsóknir í eynni, en Sveinn er í hópi þeirra vísindamanna sem mest hafa rannsakað Surtsey og móbergsmyndunina þar. Eftir erindi Sveins verður sýnd heimildarmyndin Surtsey - Eyjan svarta eftir þau Helgu Brekkan, Thorgny Nordin og Hjálmtý Heiðdal. Surtsey er friðland og umferð þar mjög takmörkuð. Eyjan er á heimsminjaskrá U12NESCO.
Aðgangseyrir félaga í Hamrinum er 500 kr. og 700 kr. fyrir aðra.

Address

Tryggvagötu 11
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:00 - 00:00
Tuesday 08:00 - 00:00
Wednesday 08:00 - 00:00
Thursday 08:00 - 00:00
Friday 08:00 - 00:00
Saturday 08:00 - 00:00
Sunday 08:00 - 00:00

Telephone

+3545551900

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Café Eldstöðin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category