Golfklúbburinn

Call Directions Website Contact the establishment

Golfklúbburinn Golfklúbburinn er fyrsta flokks golfhermastaður á besta stað í borginni. Komdu inn að leika! Golfklúbburinn er heilsárs félagsmiðstöð kylfingsins.

Golfklúbburinn er fyrsta flokks golfherma- og veitingastaður á besta stað í borginni, rétt hjá Egilshöll.

27/09/2026

Hröðun! ⚡️ Þú mátt alls ekki hægja á pútternum inn í höggið, heldur áttu þvert á móti að auka hraðann. Við skoðum þetta nánar í meðfylgjandi myndbandi 👇

Nú er innitímabilið að hefjast. Endilega tryggðu þér og þínum hóp fasta hermatíma í vetur – síminn er 820 9111 ☎️

Sem er einmitt sama símanúmer og þú hringir í ef þú vilt pútta betur 😉

Komdu inn að leika..... á réttum hraða! 🏌️‍♂️⛳️

21/09/2026

Viltu færri þrípútt í næsta hring? 🏌️‍♂️

Mikilvægasti þáttur púttsins er lengdarstjórnun – og lykillinn að henni er réttur tími og taktur.

Markmiðið er einfalt:
1️⃣ Notum alltaf sama tímann í strokuna (t.d. 1 sekúndu).
2️⃣ Höldum hlutfallinu 2:1 (2/3 aftur, 1/3 fram).

Þegar takturinn er réttur ræðst lengd púttsins af því hve langt þú dregur kylfuna aftur.

💡 Dæmi miðað við 9 á Stimp (flatt pútt), tímann 1 sek. og taktinn 2:1:
• 2 metrar ➡️ 23 cm bakstroka
• 4 metrar ➡️ 31 cm bakstroka
• 7 metrar ➡️ 39 cm bakstroka

Í myndbandinu hér með sýni ég dæmi um strokur fyrir einmitt þessar lengdir. Takið eftir því að þær taka allar rétt undir einni sekúndu og takturinn er svipaður. Það sem breytist er lengd bakstrokkunar.

Viltu vita meira? Skjóttu á mig spurningu!

Til að bóka tíma hringir þú í 820 9111.

Komdu inn að leika…
… með taktinn!

18/09/2026

Bein leið, gatan liggur greið,
bein leið, gatan liggur greið.
Það kostar svita og blóð
að fara þessa slóð...

Í þessu myndbandi fjalla ég um skynvillu í púttum - það er, hvernig við skynjum og sjáum beinu línuna.

Sýnt hefur verið fram á að meginþorri kylfinga miðar til hægri við það sem þeir ætla sér, og það er einmitt sú reynsla sem ég hef úr kennslunni. Ég ætla að leyfa mér að segja að nánast allir kylfingar miði rangt - og langflestir of mikið til hægri. Skekkjan getur verið allt frá því að vera lítilsháttar yfir í að vera svo mikil að maður trúir varla því sem maður mælir.

En af hverju gerist þetta? Skekkjan kemur til af skynvillu. Kylfingar skynja „beint“ einfaldlega rangt. Ástæðan er sú að við stöndum til hliðar við boltann og horfum upp línuna úr ákveðnu horni. Svo til að bæta gráu ofan á svart hreyfum við flest höfuðið, lítum upp og opnum jafnvel axlirnar þegar við horfum eftir línunni... eða hinni meintu línunni.

Til að vinna gegn skynvillunni þurfum við að finna skekkjuna og laga uppsetninguna yfir boltanum. Auk þess að laga líkamsstöðuna - sem er grunnurinn - eru hér nokkur atriði sem geta hjálpað þér að miða rétt:

* Nýttu línuna á boltanum: Stilltu línunni á boltanum upp þegar þú stendur fyrir aftan púttið (þar sem skynvillan er ekki til staðar). Þegar þú stendur svo yfir boltanum stólar þú á línuna, óháð því hvað augun reyna að telja þér trú um. Ef það er ekki lína á þeirri tegund bolta sem þú notar, teiknaðu hana þá á hann.

* Rétt lögun á pútter (púttermátun): Lögun púttera getur haft sjónræn áhrif á það hvernig við skynjum línu, t.d. hvort við notum stóran mallet-pútter eða blað-pútter. Þá geta mismunandi miðmerki (línur eða punktar) haft áhrif. Með öðrum orðum: réttur pútter getur minnkað skynvilluna.

* Veldu þér nær-mið: Skynvillan eykst eftir því sem púttið lengist. Í stað þess að miða á holuna eða miðpunkt við hlið hennar, veldu þér blett sem liggur á réttu línunni milli þín og miðpunktsins - gerðu þetta þegar þú stendur fyrir aftan boltann og horfir upp línuna. Bletturinn getur verið grasstrá sem hefur annan lit, gamalt boltafar eða annað á flötinni sem sker sig úr, um 20–40 cm fyrir framan boltann. Þegar þú stillir þér upp miðar þú á blettinn, sama hvað hausinn á þér reynir að segja þér.

* Sjónró og höfuðstaða: Passaðu að augun séu beint yfir eða aðeins innan við boltann. Þegar þú lítur upp línuna, snúðu þá höfðinu eins og á öxli í stað þess að „lyfta“ því upp - það kemur í veg fyrir að axlirnar opnist. Festu svo augun á einum punkti á boltanum og haltu þeirri festu í gegnum höggið.

Viltu læra? Verða betri? Hafðu þá samband við karlinn og við finnum okkur tíma.

📞Síminn er 820 9111.

Komdu inn að leika…
…með beinu leiðina!

17/09/2026

Að lesa sér til gagns

Áhugakylfingar, svona heilt yfir, undirlesa pútt. Þannig er það bara.

Gallinn við að undirlesa er tvennskonar:
* Það er ólíklegt að slíkt pútt fari í holuna (sérstaklega ef farið er yfir 2 metrana eða ef hallinn er mikill).
* Pútt sem er misst fyrir neðan holu (low side) endar oftast talsvert lengra frá holunni því hallinn heldur áfram að draga boltann frá holunni.

Rannsóknir sýna að:
* Kylfingar undirlesa pútt sem brotna frá vinstri til hægri um sirka 30%.

* Kylfingar eru heldur betri í að lesa pútt sem brotna frá hægri til vinstri, en undirlesa þau engu að síður um sirka 15%.

Ráð fyrir löng pútt (lag putts):
Ef þú heldur að boltinn brotni 10 cm, miðaðu þá frekar á 15–20 cm. Betra er að missa fyrir ofan holu (pro side) því þá á boltinn alltaf möguleika á að detta - auk þess sem eftirpúttið verður styttra.

Viltu læra að lesa þér til gagns? Komdu þá og kíktu á karlinn og við tökum lestrartíma. 📞 Sími: 820 9111

PS: Nú er rétti tíminn til að huga að bókun á föstum tímum í hermunum fyrir veturinn.

Komdu inn að leika.....með litlu gulu hænuna! 🐥

12/09/2026

Af hverju setja atvinnumenn púttin niður á meðan áhugamenn missa þau? 🏌️‍♂️⛳

Mismunurinn liggur sjaldnast í pútternum eða strokunni - heldur í því hvernig við lesum púttið og hvernig augun og heilinn vinna saman þegar kemur að því að framkvæma púttið.

Íþróttavísindi sýna að meistararnir nota tækni sem kölluð er sjónró (e. Quiet Eye):
• Festa og jaðarsjón: Atvinnumaðurinn festir augun á fáum punktum og nýtir jaðarsjónina til að taka inn hallann, rýmið og fjarlægðina, án þess að augun flakki um allt.
• Flökkusjón og spenna: Áhugamaðurinn flakkar óreglulega á milli boltans og holunnar (sem truflar taugakerfið) eða starir stífur á boltann og missir alla tilfinningu fyrir rýminu.

Hvað gerist þegar sjónró er þjálfuð (mælt á 3m púttum)?
🎯 17% meiri hittni undir keppnispressu (fer úr 47% í 64%).
📏 Betri hraðastýring: Misst pútt stoppa mun nær holunni (21 cm í stað 38 cm).
🧠 23% minni vöðvaspenna í herðum og höndum.

Athugið: Atvinnumenn þróa sjónróna oftast ósjálfrátt með sér - en við hin getum náð sömu stjórn með markvissri þjálfun.

Myndbandið hér fjallar um þetta.

Viltu vita meira? Komdu og kíktu á karlinn… síminn er 820 9111.

Komdu inn að leika…
… í rólegheitunum!

Solheim Cup - 11 til 13 september í s'-Hertogenbosch (Den Bosch), Hollandi.Mögnuð keppni í gangi. Allt jafnt eftir tvær ...
11/09/2026

Solheim Cup - 11 til 13 september í s'-Hertogenbosch (Den Bosch), Hollandi.

Mögnuð keppni í gangi. Allt jafnt eftir tvær umferðir. Gaman að sjá þrjár PXG konur í liðunum - Celine Boutier í EU, Auston Kim og Megan Khang í USA.

Langar þig í PXG kylfur? Hafðu þá samband í síma 820 9111.

Komdu inn að leika..... með PXG!

Það eru tásur víða en á Tene. Fyrir áhugafólk um tásumyndir þá er Golfklúbburinn upplagður vettvangur. Hér er blessuð bl...
10/09/2026

Það eru tásur víða en á Tene.

Fyrir áhugafólk um tásumyndir þá er Golfklúbburinn upplagður vettvangur. Hér er blessuð blíðan alla daga.

Golftímabilnu úti fer senn að ljúka (hér heima) og ég er farinn að gera klárt fyrir haustið - ef það viðrar ekki til golfleiks úti þá er bara að vippa sér beinustu leið í besta klúbb landsins.

Síminn er sem fyrr: 820 9111

Komdu inn að leika..... jafnvel á tásunum!

15/07/2026

Láttu tæknina vinna með þér...

Komdu inn að leika...

Eigum lausa rástíma á Muirfield Village!Memorial Tournament er að jafnaði eitt af skemmtilegri mótum á PGA Tour. Völluri...
03/06/2026

Eigum lausa rástíma á Muirfield Village!

Memorial Tournament er að jafnaði eitt af skemmtilegri mótum á PGA Tour. Völlurinn er almennt talinn með allra bestu keppnisvöllum í heimi. Þekktur fyrir að vera „second-shot“ völlur. Inná höggin (approach shots) eru með þeim erfiðustu á mótaröðinni.

Það er virkilega gaman að leika Muirfield í Full Swing golfhermi, en þá einmitt reynir á þessa þætti.

Bókið rástíma í síma 820 9111.

ATH: Á sumartíma er ekki fastur opnunartími, þannig að hringið á undan. Við getum líka opnað eftir pöntun.

Komdu inn að leika..... á bestu völlunum!

Address

Fossaleyni 6
Reykjavík
IS-112

Opening Hours

Monday 10:00 - 22:00
Tuesday 10:00 - 23:00
Wednesday 13:00 - 23:00
Thursday 10:00 - 23:00
Friday 10:00 - 23:00
Saturday 10:00 - 22:00
Sunday 11:00 - 20:00

Telephone

+3548209111

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Golfklúbburinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Golfklúbburinn:

Shortcuts

Share