Síldarvinnslan hf.

Síldarvinnslan hf. Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki

Ný Hafbjörg kemur til Neskaupstaðar í júní 2027Nýtt björgunarskip, sem nú er í smíðum í Finnlandi, mun koma til Neskaups...
04/09/2026

Ný Hafbjörg kemur til Neskaupstaðar í júní 2027

Nýtt björgunarskip, sem nú er í smíðum í Finnlandi, mun koma til Neskaupstaðar í júní á næsta ári. Skipið mun fá nafnið Hafbjörg og leysa núverandi Hafbjörgu af hólmi en hún hefur svo sannarlega skilað sínu með miklum sóma. Verið er að endurnýja björgunarskip á landinu og er nýja Hafbjörg eitt af 13 skipum sem smíðuð eru hjá fyrirtækinu Kewatec í Finnlandi. Þegar hefur finnska fyrirtækið afhent átta skip til Íslands.

Þessi nýju skip eru fullkomnari en þau eldri á flestum sviðum. Þau eru 16,8 metrar að lengd og vel útbúin til dráttar en togkraftur þeirra er upp á fimm tonn. Þá eru tvær aðalvélar af gerðinni Scania í skipunum og eru þau með ganghraða upp á 30 hnúta. Þau eru jetdrifin með snjallstjórnun og svonefndu sýndarakkeri þannig að um nýjasta og fullkomnasta búnað er að ræða. Allur aðbúnaður fyrir áhöfn er eins og best gerist og einnig er gott rými fyrir sjúkling á börum. Hér er um að ræða nýja kynslóð björgunarskipa og með tilkomu þeirra er stigið stórt framfaraskref.

Síldarvinnslan hefur ákveðið að veita Björgunarskipasjóði Slysavarnafélags Íslands í Neskaupstað myndarlegan styrk vegna kaupanna á þessu nýja skipi og í tilefni af því hitti heimasíðan Helga Frey Ólason formann sjóðsins að máli. Helgi sagði að styrkur Síldarvinnslunnar skipti Björgunarskipasjóðinn gríðarlegu máli en fleiri fyrirtæki hefðu einnig veitt styrki til kaupa á nýja skipinu og það hefðu sveitarfélögin Fjarðabyggð og Múlaþing einnig gert. ”Ríkið leggur til helming kaupverðsins en Landsbjörg og Björgunarskipasjóðurinn eru saman um hinn helminginn. Sjóðurinn þarf að leggja fram um 90 milljónir króna en skipið kostar um 400 milljónir. Fjársöfnunin nú er sú lang viðamesta sem Björgunarsveitin hér hefur ráðist í. Hér er um að ræða stórt átaksverkefni. Tilkoma hins nýja báts er gríðarstórt framfaraskref en sambærilegir bátar verða einnig staðsettir á Vopnafirði og Hornafirði hér eystra. Við þessi tímamót er rétt að minna á að núverandi Hafbjörg hefur reynst frábærlega en hún var keypt í Svíþjóð og kom til Neskaupstaðar árið 2021. Núverandi Hafbjörg hefur sinnt margvíslegum verkefnum og reynst í alla staði afar vel. Nú eru hins vegar nýir tímar og komnar nýjar kröfur og það verður að fylgja þeim. Það verður ekki hjá því komist að endurnýja og nútímavæða björgunarskipaflotann á landinu. Gert er ráð fyrir að núverandi Hafbjörg verði seld og muni koma að góðum notum annars staðar á landinu. Rétt er að geta þess að öllum verkefnum á björgunarskipum landsins er sinnt í sjálfboðavinnu og það skiptir öllu máli að hafa traustan hóp á bakvið starfsemi hvers skips. Við hér í Neskaupstað búum svo vel að eiga afar góðan hóp sem unnt er að treysta fullkomlega á og er tilbúinn að hlaupa í verkefni hvenær sem þörf er á. Í þessum hópi eru margir sem starfa einmitt hjá Síldarvinnslunni. Fyrir þennan hóp er sérstakt tilhlökkunarefni að fá hið nýja skip. Það verður svo sannarlega ánægjulegt að sjá nýja Hafbjörgu sigla inn Norðfjörðinn næsta sumar,” sagði Helgi Freyr.

Síldarvinnslan styrkir SamheldniSamheldni er átakssjóður með það að markmiði að sameina íslenskt atvinnulíf í öflugu áta...
04/09/2026

Síldarvinnslan styrkir Samheldni

Samheldni er átakssjóður með það að markmiði að sameina íslenskt atvinnulíf í öflugu átaki til stuðnings fólki sem á við fíknisjúkdóma að stríða og aðstandendum þeirra. Sjóðnum er ætlað að styðja verkefni sem bæta og styrkja meðferðarúrræði þannig að líkur aukist á því að þeir sem eiga í vanda eigi möguleika á betra lífi.

Stjórn Síldarvinnslunnar hefur tekið ákvörðun um að styrkja Samheldni næstu fimm árin og leggja þannig sitt lóð á vogarskálina til þess að markmið átakssjóðsins náist og störf hans skili góðum árangri.

Staðreyndin er sú að fíknisjúkdómar snerta okkur öll og mikilvægt er að hefja baráttuna gegn þeim af meiri ákveðni en áður. Hið opinbera stendur straum af rekstrarkostnaði við meðferðarúrræði en innviðafjárfestingar meðferðarstofnana- og samtaka byggja á styrkjum. Samheldni hefur þegar ákveðið að styðja þrjú mikilvæg verkefni. Í fyrsta lagi verður SÁÁ styrkt til að auka aðstoð við fjölskyldur fólks með fíknisjúkdóma. Í öðru lagi verður uppbygging smáhýsa á vegum Hlaðgerðarkots styrkt, en smáhýsin verða nýtt til tímabundinnar búsetu fólks sem er að koma úr meðferð. Í þriðja lagi verður síðan veittur stuðningur við byggingu nýrrar álmu í Krýsuvík en með tilkomu hennar mun meðferðarrýmum fjölga þar um 20.

Síldarvinnslan telur sjálfsagt að leggja sitt af mörkum til þessa góða málefnis en fyrir liggur að mörg fyrirtæki munu taka þátt í því.

Fréttir af EyjunumÍsfisktogarinn Bergey VE landaði í Grindavík á mánudag og er að landa í Eyjum í dag. Systurskipið Vest...
03/09/2026

Fréttir af Eyjunum

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði í Grindavík á mánudag og er að landa í Eyjum í dag. Systurskipið Vestmannaey VE landaði í Eyjum í gær. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og fékk fréttir.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði að lítill kraftur væri í veiðunum um þessar mundir, þetta væri óttalegt rag. “Við lönduðum fullfermi í Grindavík á mánudag og aflinn var mest þorskur og ýsa. Við hófum túrinn í Reynisdýpinu, síðan var haldið á Pétursey og Vík, þaðan var brunað á Ingólfshöfðann og endað í ýsu í Meðallandsbugtinni. Seinni túrinn var stuttur og við erum að landa 35 tonnum í Eyjum núna í dag. Sá afli fékkst á Pétursey og Vík,” sagði Jón.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að veitt hefði verið í einmunablíðu. “Við lönduðum fullfermi í gær og aflinn var jöfn blanda af þorski, ýsu og ufsa. Aflinn fékkst á Síðugrunni og Ingólfshöfða og veiðin var alveg þokkaleg en engu að síður var þetta svolítið blettótt,” sagði Egill Guðni.

Myndatexti: Bergey VE landaði í Grindavík á mánudag. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Bjarni Ólafsson gerir það gott á kolmunnanumBjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar um miðnætti með 770 tonn af kolmunn...
02/09/2026

Bjarni Ólafsson gerir það gott á kolmunnanum

Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar um miðnætti með 770 tonn af kolmunna. Löndun hófst strax úr skipinu en kolmunninn er frystur í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan innti Þorkel Pétursson skipstjóra eftir fréttum af túrnum. ”Þetta gekk virkilega vel og það var í reynd um hörkuveiði að ræða. Við vorum að veiðum á Þórsbanka í Rósagarðinum. Aflinn fékkst á einungis 36 tímum í fjórum stuttum holum. Það var dregið í fimm til s*x tíma. Þarna var talsvert að sjá. Það voru góðir blettir allvíða. Fiskurinn er heldur smærri en áður en engu að síður virkilega gott hráefni. Ég geri ráð fyrir að það taki um sólarhring að vinna aflann. Þarna voru einungis tvö skip að veiðum, við og Hoffell SU. Veður var gott megnið af túrnum en það brældi í síðasta holinu. Við erum mjög ánægðir með að sinna þessum veiðum enda ganga þær vel,” sagði Þorkell.

Myndatexti: Nú er kolmunninn frystur. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Löngutúrar hjá línuskipunumLínuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað í heimahöfn í vikunni. Páll...
02/09/2026

Löngutúrar hjá línuskipunum

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað í heimahöfn í vikunni. Páll Jónsson landaði 103 tonnum á mánudag og Sighvatur tæpum 80 tonnum í morgun. Aflinn er mest langa hjá báðum skipum en einnig er um að ræða töluvert af keilu og síðan öðrum tegundum. Skipstjórar beggja skipa töluðu um að einstök veðurblíða hefði verið á miðunum. Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að veiðin hefði verið góð. “Við fengum aflann í fimm og hálfri lögn. Það var byrjað við Surtsey á Stórahrauni, síðan var haldið á Holtshraun austan við Eyjar, þá var haldið í Háfadýpið og endað á Landsuðurhrauni. Að undanförnu hefur öll áhersla verið lögð á að veiða keilu og löngu en nú er komið nýtt kvótaár og þá verður væntanlega farið að kíkja eitthvað á þorsk og ýsu,” sagði Jónas Ingi.

Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, er sáttur við veiðina í túrnum. “Aflinn hjá okkur er kokteill en það er mest af löngu og síðan keilu. Aflinn fékkst í fimm lögnum. Við byrjuðum vestan við Reynisdýpið, síðan var haldið á Síðugrunn og endað á Landsuðurhrauninu. Hér fagna menn auðvitað nýju kvótaári og það er tilhlökkunarefni að geta farið að hugsa um þorsk og ýsu í einhverjum mæli,” sagði Óli Björn.

Myndatexti: Sighvatur GK á landleið. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Makrílvinnslan gengur velUm síðustu helgi var frystur makríll úr Beiti NK í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað...
01/09/2026

Makrílvinnslan gengur vel

Um síðustu helgi var frystur makríll úr Beiti NK í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað en skipið kom með 650 tonn úr Smugunni. Margrét EA kom síðan með tæp 500 tonn sl. nótt og hófst þegar vinnsla á farminum. Heimasíðan ræddi við Odd Einarsson, yfirverkstjóra í fiskiðjuverinu, og spurði hann um gang mála. “Það hefur gengið afar vel að vinna makrílinn á vertíðinni og skipin hafa skilað úrvalshráefni á land. Hér er búið að taka á móti um 5.600 tonnum af makríl það sem af er. Það hefur komið hlé af og til í makrílvinnsluna og hléin höfum við meðal annars nýtt til að frysta kolmunna sem Bjarni Ólafsson AK hefur veitt. Við höfum nú tekið á móti 1.300 tonnum af kolmunna til frystingar og Bjarni Ólafsson er reyndar væntanlegur með kolmunnafarm í kvöld. Makríllinn hefur að langmestu leyti verið heilfrystur en einnig hefur dálítið verið hausað og smávegis flakað. Úr makrílnum hafa verið framleiddar verðmætar afurðir og eru menn sallaánægðir með hvernig framleiðslan hefur gengið. Nú fer að líða að lokum makrílvertíðar og menn eru farnir að hyggja að síldarvertíð sem hefst síðar í þessum nýbyrjaða mánuði,” sagði Oddur.

Líklega besti túr BlængsFrystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í morgun að loknum frábærum túr. Aflinn var 822 ...
31/08/2026

Líklega besti túr Blængs

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í morgun að loknum frábærum túr. Aflinn var 822 tonn upp úr sjó og verðmæti hans eru 660 milljónir króna. Heimasíðan ræddi stuttlega við Bjarna Ólaf Hjálmarsson skipstjóra og var hann mjög sáttur við veiðiferðina. ”Þessi veiðiferð er á meðal þeirra bestu sem við höfum upplifað á Blængi og kannski er þetta besti túrinn. Það er um að ræða 30 daga túr og verðmæti aflans er um 22 milljónir á dag. Það getur enginn verið ósáttur við túr eins og þennan – þetta er sannkallaður þrusutúr. Við vorum fyrstu tíu dagana að veiðum á suðausturmiðum en síðan var haldið á Vestfjarðamið. Það var gott veður mest allan túrinn. Við fengum einungis eina sólarhrings brælu. Í aflanum er mest af ýsu eða 330 tonn en síðan er þetta þorskur, karfi og ufsi. Við hér um borð erum kátir enda getum við ekki verið neitt annað þegar svona gengur,” sagði Bjarni Ólafur.

Blængur mun halda til veiða á ný annað kvöld.

Myndatexti: Blængur NK siglir inn Norðfjörð að loknum frábærum túr. Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson

Fáránlega gott veður í túrnumÍsfisktogarinn Birtingur NK kom til Neskaupstaðar í morgun að lokinni veiðiferð. Afli skips...
31/08/2026

Fáránlega gott veður í túrnum

Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Neskaupstaðar í morgun að lokinni veiðiferð. Afli skipsins var 82 tonn, mest þorskur. Heimasíðan ræddi við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra og spurði hvernig túrinn hefði gengið. ”Hann gekk misjafnlega. Aflann fengum við að langmestu leyti á Fætinum en svo var einnig dálítið veitt á Verkamannabankanum. Við reyndum að leita að ýsu með skelfilegum árangri. Mest var leitað á Breiðdalsgrunni og reyndar var víðar farið. Sannleikurinn er sá að það hefur ekki verið nein sérstök veiði á þessum slóðum að undanförnu og ýsuna vantar algjörlega. Hún er bara ekki mætt. Þorskurinn sem fékkst er hins vegar hinn ágætasti og hentar örugglega mjög vel í vinnsluna. Veðrið í túrnum var hreint út sagt alveg fáránlega gott. Það eru engar ýkjur að veðrið er yfirleitt best hérna austurfrá,” sagði Einar Ólafur.

Birtingur mun á ný halda til veiða í kvöld.

Myndatexti: Birtingur NK hefur verið að veiðum fyrir austan. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Það er þolinmæðisverk að veiða makrílBörkur NK kom með 650 tonn af makríl til Neskaupstaðar í fyrrinótt og hófst þá stra...
28/08/2026

Það er þolinmæðisverk að veiða makríl

Börkur NK kom með 650 tonn af makríl til Neskaupstaðar í fyrrinótt og hófst þá strax vinnsla á aflanum í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan ræddi við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra og spurði hann um gang veiðanna. “Aflinn sem við komum með er að hluta til okkar eigin en þetta er einnig afli frá Beiti NK og Margréti EA. Við vorum að veiðum í Smugunni eins og áður. Það mætti alveg vera meira af makrílnum og hann hegðar sér í reyndinni eins og hann hefur alltaf gert; mikið á ferðinni og fljótlega eftir að hann finnst hverfur hann snögglega. Það koma annað slagið veiðiglennur en mestur tíminn fer í að leita. Það þarf svo sannarlega að hafa fyrir þessu og það má alveg segja að það sé þolinmæðisverk að veiða makrílinn. Við erum auðvitað bæði þolinmóðir og geðgóðir og hömumst í þessu áfram. Þetta hefur bara sinn gang. Hitt er annað mál að fiskurinn sem við flytjum að landi er virkilega flottur. Þetta er fiskur sem er um 500 grömm, bæði stór og gullfallegur,” sagði Hjörvar.

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, tekur undir með skipstjóranum og segir að makrílinn sé úrvalshráefni til vinnslu. Segir hann að langmest af fiskinum sé heilfrystur en hluti aflans sé hausaður. Þá upplýsti Geir Sigurpáll að Beitir NK væri væntanlegur úr Smugunni á morgun með 650 tonn.

Myndatexti: Börkur NK að veiðum. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Landað í lok kvótaársVestmannaeyjaskipin Bergey VE og Vestmannaey VE hafa komið að landi með ágætan afla nú í lok kvótaá...
27/08/2026

Landað í lok kvótaárs

Vestmannaeyjaskipin Bergey VE og Vestmannaey VE hafa komið að landi með ágætan afla nú í lok kvótaársins. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana. Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, upplýsti að Bergey hefði landað í Eyjum í gærmorgun. “Við vorum með rétt tæp 70 tonn og aflinn var mest þorskur. Við hófum túrinn í Meðallandsbugtinni og tókum þar tvo hol. Þá var haldið á Ingólfshöfðann en einungis eitt hol tekið þar. Þá lá leiðin í Berufjarðarálinn þar sem hafði verið ágæt veiði en hún fór minnkandi eftir að við komum. Veitt var í Berufjarðarálnum á meðan bjart var en farið út í kanta þegar dimmdi. Nú er verið að kveðja þetta kvótaár og nýtt að ganga í garð og á þessum tímamótum eru menn bara brattir,” sagði Ragnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að landað hefði verið í Eyjum í morgun að loknum karfatúr. ”Við vorum með um 56 tonn og það var farið allvíða í túrnum. Það var byrjað í Sparisjóðnum, þaðan haldið á Belgableiðuna og síðan á Sneiðina og í Háfadýpið. Undir lokin var veitt í Reynisdýpinu og á Víkinni. Við lönduðum áður fullfermi í Grindavík á sunnudaginn. Þá var aflinn mest þorskur sem fékkst í Berufjarðarálnum þar sem var fínasta veiði. Nú er nýtt kvótaár að ganga í garð og auðvitað eru það alltaf ákveðin tímamót fyrir okkur,” sagði Birgir Þór.

Myndatexti: Bergey VE á leið til hafnar. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Address

Hafnarbraut 6
Neskaupstaður
740

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00
Friday 10:00 - 15:00

Telephone

470 7000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Síldarvinnslan hf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Síldarvinnslan hf.:

Shortcuts

Share