18/06/2022
Takk frá okkur í Vinnuskóla Hafnarfjarðar.
Dagurinn í gær var frábær í alla staði. Okkur langar að þakka öllum þeim sem tók þátt í að gera þennan dag að þessari veislu sem hann var. Það yrði langur listi ef ég ætlaði að telja upp öll þau félög, fyrirtæki, íbúa, hesta, fjölskyldur, skemmtikraftar, þjóðhátíðarnefndmeðlimir og starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar sem gerðu sitt allra best til að gera 17. Júní í Hafnarfirði að þeirri hátíð sem hún er.
En mig langar samt sérstaklega að þakka starfsmönnum Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Þau gerðu allt til að gera þennan dag eins skemmtilegan og hægt er. Nokkrir flokkstjórar duttum ofan í lækinn við að bjóða upp á báta, annar hópur með blöðrur á fingrum eftir daginn eftir að hafa gert hundraða blöðrudýra og nokkur fjöldi gekk tæplega 30.000 skref við hreinsa og taka til á meðan bæjarbúar skemmtu sér. Það var eins og það væri sér valinn einstaklingur í hverju starfi. Flottur hópur verkstjóra hélt utan upp allt skipulag og flest stóðu vaktina frá 8:00 til 23:30.
Þau eru nær öll á aldrinum 15 til 24 ára. Framtíðin er björt í Firðinum.
Jón Grétar Þórsson
Umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar