Tónlistarmiðstöð Austurlands

Tónlistarmiðstöð Austurlands Tónlistarmiðstöð Austurlands er miðstöð tónlistar á Austurlandi Tónlistarmiðstöðin var stofnuð 2001 og starfar samkvæmt samþykkt frá 2018.

Menningarstofa Fjarðabyggðar, starfar í Fjarðabyggð og undir henni Tónlistarmiðstöð Austurlands en hún er miðstöð tónlistar á Austurlandi og er leiðandi í fræðslu og framþróun listgreinarinnar í landshlutanum. Tónlistarmiðstöð Austurlands er samstarfsaðili annarra menningarmiðstöðva á Austurlandi varðandi stefnumótun í málefnum tónlistar fyrir landshlutann og samstarfsverkefna á breiðum grunni. Tónleikasalur Tónlistarmiðstöðvar Austurlands á Eskifirði er vinsæll til tónleikahalds af flestum toga. Tónlistarmiðstöðin er vel tækjum búin og hljómburður í húsinu er mjög góður. Húsið er einnig afar hentugt til ýmiskonar sýningahalds, hvers kyns ráðstefna og funda. Tónlistarmiðstöð Austurlands er miðstöð tónlistar á Austurlandi og var með samning við SSA um þróun tónlistarstarfs til ársloka 2019 en þá tók Menningarstofa Fjarðabyggðar við samningnum og heldur utan um starfsemina sem er ekki bundin við húsið á Eskifirði eitt og sér. Mikil þekking á íslensku tónlistarlífi er til staðar innan veggja Tónlistarmiðstöðvarinnar og starfsfólk sinnir ríkulega þeirri skyldu sinni að vinna að nýjum verkefnum á tónlistarsviðinu og miðla upplýsingum til samfélagsins. Menningarstofa Fjarðabyggðar leggur mikið upp úr góðu samstarfi við þá sem koma að menningarstarfi á Austurlandi og styður vel við skipulag og framkvæmd viðburða, ekki síst á sviði fræðslu. MEÐAL HELSTU VERKEFNA

•Tónleika- og viðburðahald
•Fræðsla og þróunarstarf með börnum og fullorðnum
•Stuðningur við grasrótina
•Þekkingaruppbygging og ráðgjöf

10/04/2026

Sinfóníuhljómsveit Austurlands heldur vortónleika þar sem nýr saxófónkonsert eftir Wesley Stephens er frumfluttur ásamt klassískum stórvirkjum.

Address

Dalbraut 2
Eskifjörður
735

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tónlistarmiðstöð Austurlands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share