Björgunarsveitin Dalvík

Björgunarsveitin Dalvík Björgunarsveitin Dalvík

Neyðarlínan heldur upp á 1-1-2 daginn þann 11. febrúar á hverju ári því að dagsetningin 11. 2. minnir okkur á neyðarnúme...
10/02/2026

Neyðarlínan heldur upp á 1-1-2 daginn þann 11. febrúar á hverju ári því að dagsetningin 11. 2. minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 1-1-2. Það er mikilvægt að minna á þetta númer af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð. Í ár minnumst við þess að 30 ár eru síðan samræmt neyðarsímanúmer var tekið upp á Íslandi og fyrsta símtalinu í 1-1-2 svarað 1. janúar 1996. Neyðarverðir taka á móti öllum erindum sem berast 1-1-2 og vinna úr þeim. Þau veita stuðning og leiðbeiningar og sjá til þess að málin fari í réttan farveg. Til þess að samstarf innhringjanda og neyðarvarðar gangi sem farsællegast er gagnlegt að vera viðbúinn að svara eftirfarandi spurningum þegar hringt er í 1-1-2. · Hvar er atburðurinn? · Hver ert þú? · Hvað gerðist? · Hvenær gerðist atburðurinn?

Víða um landið verða ýmsir viðburðir, en í Dalvíkurbyggð munu viðbragðsaðilar í sveitarfélaginu byrja daginn á heimsókn á leikskólann Krílakot, en svo síðar um daginn stendur íbúum til boða að koma á opin hús að Gunnarsbraut 4. Félagar í Björgunarsveitinni Dalvík og Slysavarnardeildinni Dalvík munu taka á móti gestum og gangandi milli kl. 16 og 18. heitt verður á könnunni 😊

Flugeldasalan verður opin á dag!
06/01/2026

Flugeldasalan verður opin á dag!

Address

Gunnarsbraut 4
Dalvík

Telephone

4663333

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Björgunarsveitin Dalvík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share