30/10/2023
Heimsmeistarakeppnin í ostum fór fram í Þrándheimi í Noregi um liðna helgi, en þessi keppni færist milli ára víða um heiminn. Alls kepptu 4502 ostar um titilinn og bar blámygluostur frá Gangstad Gårdysteri í Noregi sigur úr býtum. Ekki kepptu íslenskir ostar að þessu sinni en ég og Þorgrímur frá Erpsstöðum fórum út til að kynna okkur keppnina með það í huga að taka þátt í henni seinna meir. Hann fyrir Rjómabúið á Erpsstöðum og ég fyrir hönd Brúnastaðir ostavinnsla . Eins og gefur að skilja var margt að sjá og margs að spyrja. Við enduðum síðan á að fá að skoða tvær heimavinnslur þar sem bændur vinna úr sinni eigin mjólk. Gestrisni Norðmanna er einstök og úr var eftirminnileg ferð. Hér eru nokkrar myndir frá henni.