Sauðanes

Sauðanes Sauðanes hrossarækt

Það byrjar vel bleikálótt ýruskjótt hryssa undan Rómantík og vindóttur hestur undan Sunnu. Faðirinn er Ellert ftá Baldur...
28/05/2026

Það byrjar vel bleikálótt ýruskjótt hryssa undan Rómantík og vindóttur hestur undan Sunnu. Faðirinn er Ellert ftá Baldurshaga.
Restin af folöldunum á að vera ýmist skjótt eða vindótt eða bæði. Nema hún Dáfríður á von á folaldi í íslensku sauðalitunum.

Þessar litlu gellurnar fóru í frammhaldsskóla í Skagafjörð 12. Apríl síðastliðinn til Bjarna Jónasar.Fyrsta hryssan sem ...
04/05/2026

Þessar litlu gellurnar fóru í frammhaldsskóla í Skagafjörð 12. Apríl síðastliðinn til Bjarna Jónasar.
Fyrsta hryssan sem ég sendi honum var Minning frá Sauðanesi en hún var í eigu karls föður míns. Það var 2004 og fór hún í sæmilegan dóm en hún fór ekki í 1. Verðlaun fyrr en 9 vetra og búin að eiga tvö folöld þá.
Næst var það Prýði frá Ketilsstöðum og var hún sú fyrsta sem ég lét sýna sem var mín persónulega einkaeign.
Ég hafði sjálfur farið með hana á aprílsýningu á Krókinn sem mér fannst snilldarhugmynd til að geta lokið öllu hestastússi fyrir sauðburð. Það er skemmst frá því að segja að aldrei hefur verið reynt að halda kynbótasýningu svo snemma aftur. Yfirlit fór fram í stórhríð og sýnendur riðu fram og aftur í gegnum reiðhöllina en dómarar dæmdu þar inni.
Prýði fór í um 7.70 og ég ekki sáttur fékk Bjarna til að hoppa á bak hryssunni og úr varð að ég skildi hana eftir hjá honum og fór heim.
Mánuði síðar sýndi BJ hryssuna aftur og hlaut hún þá 8.25 í aðaleinnkunn. Efsta 5 vetra hryssan á sýningunni og ég fékk bikar og alles. Meirað segja hækkaði hún um hálfann fyrir háls frá aprílsýningunni.
Prýði er nú 25 vetra í vor og því 20 ár liðin frá atburðum þessum.
Síðan þá hefur Bjarni tekið af mér efnilegustu hryssurnar á vorin, oftast um páska, og sýnt þær. Einhver ár hafa dottið úr en flest vor hefur hann tekið við einni til þrem hryssum og allavega fimm sinnum komið hryssu inná LM.
Þetta er snilldar fyrirkomulag og við erum enþá ungir svo ég reikna með að samtarf okkar gæti átt 30 ár eftir hið minnsta.
Það gerir trúlega gæfumuninn hve langt er á milli okkar svo ég get lítið verið að heimsækja hann og angra.
Hryssurnar heita Dýrfinna 5v, Hátign 5v og Rauðspretta 6v. Vonandi verða þær ekki til skammar

Ýmis ævintýri um páskana hjá okkur
10/04/2026

Ýmis ævintýri um páskana hjá okkur

Silfradóttir nr tvö á folaldasýningu fyrir sunnan. Jarpvindótt og glæsileg þó ég segi sjálfur fráVið gerðum nefnilega fo...
20/03/2026

Silfradóttir nr tvö á folaldasýningu fyrir sunnan. Jarpvindótt og glæsileg þó ég segi sjálfur frá
Við gerðum nefnilega folatollakaup fyrir nokkru síðan. Silfri fór í hólf fyrir sunnan og ég fæ að halda undir Ellert frá Baldurshaga í staðinn.
Svo þetta er orðið hálfgert félagsbú .. Sauðahagi eða Baldursnes..?
Bæði hljóma vel.
Toppiði það og rokk on

Það var margt um manninn hér um helgina
16/03/2026

Það var margt um manninn hér um helgina

Þetta var myndin sem ég vildi láta birtast fyrst í síðustu færslu. En vegna tæknilegs kunnáttuleysis gekk það ekki upp.Þ...
11/03/2026

Þetta var myndin sem ég vildi láta birtast fyrst í síðustu færslu. En vegna tæknilegs kunnáttuleysis gekk það ekki upp.

Þarna eru Katrín og Silfri í góðum gír.
En hún sér alfarið um þjálfun hans undanfarin 2 ár og gengur bara vel

Við Katrín Sif erum búin að skella okkur á 2 hestamót í vetur.Alltaf gaman að fara út á meðal manna og láta einsog hálfv...
09/03/2026

Við Katrín Sif erum búin að skella okkur á 2 hestamót í vetur.
Alltaf gaman að fara út á meðal manna og láta einsog hálfviti.
Fórum á fjórgangsmót Freyfaxa á Iðavöllum fyrst og Katrín og Silfri komust í B úrslit í unglingaflokki og sigruðu þau sannfærandi. En við Dýrfinna komumst ekki í úrslit.
Næst var það Mývatnsmótið en þar er ekki boðið uppá unglingaflokk og Katrín þurfti þar að keppa í fullorðinsflokki í tölti og komst ekki í úrslit.
Rauðspretta á 6.vetri komst í úrslit í A flokki og endaði í fjórða sæti
Dýrfinna á 5.vetri rúllaði í gegnum töltkeppnina og fékk 6.3 og fimmta eftir forkeppni og átti sæti í úrslitum sem við ákváðum að sleppa og komast bara fyrr af stað heim. Einnig hef ég heyrt að hross á þessum aldri megi ekki keppa til úrslita?
Allavega fór enginn flatur í þessum ferðum og hin besta skemmtun.

Elsku brúnka mín sem datt var býsna góð áður en hún datt. Þetta er hryssa á 4. vetur og í annað skipti í útreiðartúr. Hú...
06/03/2026

Elsku brúnka mín sem datt var býsna góð áður en hún datt. Þetta er hryssa á 4. vetur og í annað skipti í útreiðartúr.
Hún heitir því ljóta nafni Skrugga og fædd hér á Snauðanesi. Hún er undan Trymbli og Gyðju frá Brimnesi.
Við vorum á fullu stími þegar kom skyndilega hart í bak.
Við prufum aftur í dag hálft stím

Myndin í dag fékk svo frábærar viðtökur að ég skelli syrpu af byltunni til viðbótar. Einhverra hluta vegna tekst mér ald...
05/03/2026

Myndin í dag fékk svo frábærar viðtökur að ég skelli syrpu af byltunni til viðbótar. Einhverra hluta vegna tekst mér aldrei að byrta video á þessari síðu. Og heilsan er góð sluppum bæði takk allir fyrir að spyrja eftir því. Ég var næstum farinn að ýminda mér að einhverjum þætti vænt um mig þegar ég las þetta. Vill til að ég er margreyndur að bylta mér þarna á gamla flugvellinum. Ekki í fyrsta sinn sem maður rúllar þarna eins og skítköggull eftir brautinni.
Myndatökumanninum varð hinsvegar svo illt við að hann stóð sig ekki að mynda til enda og var honum veitt viðeigandi áfallahjálp á staðnum

Stundum liggur hjá manni og stundum ekki
05/03/2026

Stundum liggur hjá manni og stundum ekki

Address

Sauðanesi
Þórshöfn
681

Telephone

+3548919266

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sauðanes posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Sauðanes:

Share