Bókasafnið í Jónshúsi

Bókasafnið í Jónshúsi Upplýsingar um íslenska bókasafnið í Jónshúsi og bókakostinn þar, sér í lagi barnabækurnar. Opið á opnunartíma Jónshúss, sjá jonshus.dk Lítið við!

Bókasafnið í Jónshúsi var opnað árið 1979 að áeggjan framsýnna og hugmyndaríkra Íslendinga búsettum í Kaupmannahöfn. Um hugsjónastarf var að ræða og voru fyrstu bækurnar sendar til Danmerkur með flugfrakt eftir söfnunarferð til bókaútgefenda á Íslandi. Um tíma starfaði bókasafnsfræðingur í sjálfboðavinnu við skráningu og umsjón með útlánum á safninu, og var þá opið í nokkra tíma í viku hverri. Síðustu misseri hefur bókasafnið lifað sjálfstæðu lífi og verið opið gestum og gangandi án nokkurrar umsjónar með útlánum. Fólki er treyst fyrir bókakostinum og er óskin sú að sem flestir næli sér í bók og lesi sér til gagns og gamans. Við erum tvær bókanördar og krossgátuunnendur, sem vonumst til þess að fleiri líti við á safninu, ekki síst börn og barnafjölskyldur. Með það að markmiði höfum við tekið okkur saman um að gera barnabókahorn aðlaðandi og skemmtilegt að heimsækja.

Adresse

Copenhagen
1350

Hvad er åbningstiderne?

Tirsdag 11:00 - 17:00
Onsdag 11:00 - 17:00
Torsdag 11:00 - 17:00
Fredag 11:00 - 17:00
Lørdag 10:00 - 16:00
Søndag 10:00 - 16:00

Internet side

Underretninger

Vær den første til at vide, og lad os sende dig en email, når Bókasafnið í Jónshúsi sender nyheder og tilbud. Din e-mail-adresse vil ikke blive brugt til andre formål, og du kan til enhver tid afmelde dig.

Genveje

Del