02/06/2026
Barnadjass óskar öllum styrkhöfum hjartanlega til hamingju með úthlutanirnar.
Að þessu sinni hlaut Barnadjass ekki styrk, og höfum við því brugðist við með ýmsum leiðum til að tryggja að hátíðin fari fram eins og áætlað er.
Mosfellsbær hefur verið dyggur stuðningsaðili frá upphafi. Eins höfum við leitað eftir stuðningi frá fyrirtækjum og félagasamtökum í nærumhverfinu (takk Fasteignasala Mosfellsbæjar!), bakað, safnað dósum og erum einnig með söfnun í gangi á Karolina Fund: https://www.karolinafund.com/project/view/6774
Það er ljóst að hátíðin verður haldin. Það er fyrst og fremst þökk sé því að kennarar okkar ákváðu að gefa hluta vinnu sinnar til að láta þetta ganga upp. Við erum þeim innilega þakklát.
Við viljum þó gera okkar allra besta til að standa við upprunalega samninga við tónlistarfólkið og hvetjum alla sem geta til að styðja við verkefnið.
Takk fyrir að hjálpa okkur að halda Barnadjass í Mosó lifandi og aðgengilegu fyrir börn og fjölskyldur. See less
Barnamenningarsjóður úthlutar 90 milljónum til 43 verkefna.
Úthlutunin fór fram í Höfuðstöðinni þar sem Hljómsveit 2 í Tónskóla Sigursveins spilaði fyrir gesti í sumarblíðunni.
Alls voru veitir styrkir til 43 fjölbreyttra verkefna á sviði barnamenningar.
Sjá frétt í fyrstu athugasemd