29/12/2014
Kæru vinir,
Þann 27. desember síðastliðinn, fór fram Staðarskálamót í körfuknattleik í íþróttahúsinu á Hvammstanga. Ég þykist vita fullvel hvað þið flest eruð að hugsa; “Hverjum er ekki drullusama?” En ég get fullvissað ykkur um það að reyndar er til fólk sem hefur áhuga á ótrúlegustu hlutum, og þar á meðal körfuknattleik.
Lið KF. Brjáns, sem bar sigur úr býtum á mótinu í fyrra, mætti galvaskt til leiks með það háleita markmið að verja titilinn, en vegna fullkomlega ófyrirsjáanlegra aðstæðna varð þeim ekki kápan úr því klæðinu, né náðu leikmenn að sníða sér stakk eftir vexti. Eftir að hafa ráðfært sig við fagmenn á hinum ýmsu sviðum, hafa Brjánsmenn þó fundið aðal orsakir hrakfaranna, en þær má aðallega rekja til þess að einn af stjörnuleikmönnum KF. Brjáns, Birkir Þór Þorbjörnsson hefur neyðst til að leggja skóna á hilluna frægu, sökum þrálátra meiðsla í hægri stórutá og síhækkandi ennis, en augljóst þykir að spilamennska Brjánsmanna hefði verið með töluvert ólíku sniði ef hæfileika hans hefði notið við.
Brjánsmenn geta þó ekki annað gert en að senda nýkrýndum meisturum mótsins, Kormáki, hamingjuóskir með afrek sitt, en eins og flestir vita hefur fátt annað hefur verið rætt síðustu daga á Húnvetnskum kaffistofum en óaðfinnanleg spilamennska Ragga í Fæðó, en hann spilaði eins og engill og var eftir frammistöðuna réttlega lýst sem hvítu útgáfunni af Larry Bird.
Að lokum vilja Brjánsmenn óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Ókei bæ.